Jæja, þá er komið að fyrsta hittingi á nýju ári.
Mánudaginn 21. janúar verður haldinn gimsteinahittingur
Það gleður mig að tilkynna þetta.
Og það gleður mig enn meira að ég get nýtt tækifærði og boðið ykkur á nýja heimili mitt í fyrsta skipti.. veiveiveiveivei
Sem sagt.. þá er það 21. janúar, kapellustígur 7 (grá blokk með rauðum stigagangi), íbúð 305, klukkan 20:30. Vonast til að sjá ykkur sem flestar þær sem ekki komast... ýkt óheppnar.
Fyrir dreifarana: Þegar þið keyrið eins og þið séuð að fara útúr bænum til t.d. mosfellsbæjar þá keyrið þið þangað til þið sjáið blómaval, húsgagnahöllina og landsbanka ykkur á hægri hönd. Þá beygið þið til hægri og komið að umferðarljósum. Þar takið þið vinstri beygju og keyrið þar til þið komið að hringtorgi. Farið beint yfir hringtorgið, s.s. beygja númer 2. Keyrið áfram fyrst kemur beygja til hægri sem stendur á Klausturstígur, hunsið hana, svo kemur beygja númer 2 sem stendur kapellustígur.. þið eruð á réttri leið. finnið ykkur gott stæði og þá bý ég í blokkinni sem er lengst uppi í brekkunni. soldill spölur að ganga... ca. 2 mínútur frá bílastæði.
með vinsemd og virðingu.
Raven